… og rækta nýjan skóg

Nýmörk er samstarfsverkefni
Pokasjóðs verslunarinnar, og Land og skógur.


Milljón plöntur

Markmið verkefnisins er að setja niður eina milljón plöntur á næstu árum víðs vegar um landið og gefa þannig einstaklingum og félagasamtökum kost á að byggja upp eigin skóg þar sem áherslan er lögð á bindingu kolefnis.

Plöntukaup

Pokasjóður leggur til fjármagn til kaupa á plöntum en skipulagning og fagleg útfærsla er í höndum Land og skógur. 

Einstaklingar og félagasamtök sem hafa yfir að ráða landsvæði sem er vel fallið til skógræktar geta sótt um styrk til plöntukaupa. Lágmarks stærð landsvæðis er 3 hektarar (ekki frístundalóðir) og þarf það að vera afgirt og friðað fyrir beit. 

Eingöngu er veittur styrkur til kaupa á plöntum, þ.e.a.s. skógartrjám sem eru vel fallin til bindingar kolefnis, svo sem ösp, birki og fura. Skógræktin og Landgræðslan annast eftirfylgni verkefnisins og munu í sameiningu hafa umsjón með útplöntun á hverju svæði.

Umsóknareyðublað er að finna hér að neðan og er eingöngu tekið við rafrænum umsóknum. Styrkjum er úthlutað einu sinni á ári og er fyrirkomulagið þannig að styrkþegi kaupir sjálfur plöntur en Nýmörk greiðir allt að helming upphæðarinnar við framvísun reiknings frá ræktunarstöð.

Umsóknarfrestur vor 2024 er til
15. apríl.


Athugið!

Umsóknina þarf að fylla út í einu lagi og senda svo inn.

Ekki er hægt að vista hálfkláraða umsókn.

Öllum umsóknum verður svarað með tölvupósti.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. apríl 2024


Umsókn 2024



Athugið!

Umsóknina þarf að fylla út í einu lagi og senda svo inn. Ekki er hægt að vista hálfkláraða umsókn.

Öllum umsóknum verður svarað á tölvupósti. Munið að skrá nafn tengiliðs og heimilisfang.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. apríl 2024.